Hárígræðsla hentar bæði körlum og konum sem glíma við hárlos
Við höfum safnað saman ýmsum spurningum sem hafa komið upp, bæði hjá okkur og svo fólki sem við höfum leiðbeint í gegnum þetta ferli. Margir velta fyrir sér hvaða möguleikar séu í boði sem henta þeim, varanleika aðgerðarinnar, ferlið í Tyrklandi og eftirfylgni og stuðning eftir heimkomu. Hérna tökum við saman helstu þær spurningar sem við höfum fengið.
Hárígræðsla er varanleg lausn við hárlosi þar sem heilbrigðir hársekkir eru teknir af svæðum þar sem hárið er þétt (yfirleitt aftan á höfði) og græddir í hárlaus eða þynnri svæði. Aðgerðin er framkvæmd með nútímalegum örskurðaðferðum sem tryggja náttúrulegan árangur.
Hárígræðsla hentar bæði körlum og konum sem glíma við hárlos, sérstaklega svokallað androgenetic alopecia. Hún hentar einnig fólki með ör eða staðbundið hárlos af öðrum orsökum. Fyrirfram mat fer alltaf fram til að tryggja að aðgerðin henti viðkomandi.
Gefur sér um ráðgjöf, undirbúning og eftirfylgd hér heima, en EsteFirst framkvæmir aðgerðina í Istanbúl. Skjólstæðingar fá þannig bæði persónulega þjónustu á Íslandi og aðgang að alþjóðlegri sérþekkingu í hárígræðslu
EsteFirst býður upp á:
- FUE (Follicular Unit Extraction)
- FUE Sapphire, þróaða útgáfu FUE með safír-blöðum
- DHI (Direct Hair Implantation)
Val á aðferð fer eftir hárgerð, hárlosi, væntingum og mati sérfræðinga.
- FUE: Hársekkir eru teknir einn í einu og græddir í undirbúin svæði.
- FUE Sapphire: Notar safír-blöð til að opna nákvæmari og mjórri rásir, sem getur skilað meiri þéttleika og hraðari bata. • DHI: Hársekkir eru græddir beint í hársvörðinn með sérstöku tæki (Choi penna) án þess að opna rásir fyrirfram. Hentar vel þegar markmiðið er mikill þéttleiki.
Já. Hársekkirnir sem eru græddir eru teknir af svæðum sem eru ekki viðkvæm fyrir hárlosi og halda því eiginleikum sínum til framtíðar.
Við FUE, FUE Sapphire og DHI aðferðir myndast engin sýnileg ör. Aðgerðirnar eru framkvæmdar án hefðbundinna skurða eða sauma.
Aðgerðin er framkvæmd í staðdeyfingu. Flestir upplifa lítil sem engin óþægindi á meðan á aðgerð stendur og væg óþægindi fyrstu dagana eftir á.
Flestir geta snúið aftur til léttari daglegra athafna eftir fáeina daga. Skorpa og roði hverfa smám saman á fyrstu vikum. Endanlegur hárvöxtur kemur fram á 9–12 mánuðum
Gefur mælir almennt með 5 nátta dvöl. Aðgerð fer yfirleitt fram daginn eftir komu og hárþvottur nokkrum dögum síðar. Þetta veitir meiri þægindi og rólegra ferðalag heim.
Já. Gefur fylgir skjólstæðingum eftir með leiðbeiningum, svörum og stuðningi eftir að heim er komið. Þú ert ekki einn í ferlinu.
Hár byrjar að vaxa á ný eftir nokkra mánuði. Fyrstu sýnilegu breytingar koma oft fram eftir 3–4 mánuði og fullur árangur eftir um 12 mánuði.
Já, að því gefnu að hún sé framkvæmd af reyndum sérfræðingum. EsteFirst framkvæmir ítarlegt heilsufarsmat fyrir hverja aðgerð og leggur öryggi skjólstæðinga ávallt í forgang.
Ferlið hefst með því að hafa samband við Gefur. Þú færð ráðgjöf, sendir inn myndir til mats og færð persónulega áætlun sem hentar þér.