1. Gildissvið
Skilmálar þessir taka til allrar þjónustu sem Gefur útlit ehf. („Gefur útlit“) veitir viðskiptavinum, þar með talið ráðgjafar, upplýsingagjafar, samskiptaaðstoðar og aðstoðar við bókanir hjá þriðja aðila, þar á meðal erlendum heilbrigðisaðilum og þjónustuaðilum.
2. Hlutverk Gefur útlits
Gefur útlit veitir aðeins ráðgjöf, miðlun upplýsinga og aðstoð við undirbúning og aðgengi að þjónustu sem framkvæmd er af utanaðkomandi aðilum, einkum erlendum heilbrigðisstofnunum.
Gefur útlit er ekki heilbrigðisstofnun, ekki heilbrigðisstarfsmaður og tekur enga ákvörðun um læknisfræðileg inngrip eða framkvæmd aðgerða.
3. Ábyrgð þriðja aðila
Allar aðgerðir, læknismeðferðir, læknisfræðileg niðurstaða, eftirmeðferð og þjónusta er veitt af viðkomandi klíník eða heilbrigðisstarfsmönnum sem viðskiptavinur kýs að nýta.
Allar skuldbindingar, ábyrgðir og kröfur vegna:
- mistaka í læknisþjónustu
- fylgikvilla eða aukaverkana
- tafar eða vanefnda við framkvæmd aðgerða
- sótthreinsunar, aðbúnaðar, búnaðar eða læknisfræðilegra aðferða
eru á ábyrgð viðkomandi heilbrigðisaðila og falla alfarið utan ábyrgðar Gefur útlits.
4. Engin trygging um árangur
Upplýsingar sem Gefur útlit veitir um væntanlegan árangur hárígræðslu byggja á almennum upplýsingum, opinberum gögnum eða fyrri reynslu einstaklinga.
Gefur útlit veitir enga tryggingu, beina eða óbeina, um:
- sjúkdóms-/meðferðarsvörun
- faglega framkvæmd
- árangur, útlit eða endingu hárígræðslu
- bataferli
- tæknilegar aðferðir eða gæði þjónustu þriðja aðila.
Viðskiptavinur ber fulla áhættu af niðurstöðu aðgerðar og bataferli.
5. Áhættuþættir og upplýst samþykki
Viðskiptavinur er upplýstur um að mögulegir fylgikvillar læknisaðgerða geta verið m.a.:
- sýking, bólga, roði eða erting
- óvænt niðurstaða í hárvexti eða dreifingu grafta
- örmyndun eða húðviðbrögð
- þörf á endurmeðferð eða viðbótaraðgerð
Með samþykki þessara skilmála staðfestir viðskiptavinur að hann hafi kynnt sér áhættuna og beri sjálfur ákvörðun um að fara í aðgerð.
6. Ferðalög, aðbúnaður og flutningar
Ef viðskiptavinur kýs að nýta ferðaaðstoð sem Gefur útlit hjálpar til við, þá ber viðskiptavinur ábyrgð á ferðaskjölum, vegabréfi, tryggingum, flugmiðum og öllum persónulegum kostnaði.
Gefur útlit ber enga ábyrgð á:
- breytingum á ferðatilhögun
- seinkun flugs eða flutningi
- tjóni á farangri eða töfum á afhendingu
- hótelbókunum, breytingum eða þjónustu gististaða SKOÐA
- veikindum, slysum eða ófyrirséðum aðstæðum á ferðalögum.
7. Eftirmeðferð og samskipti
Gefur útlit getur veitt aðstoð við samskipti eftir aðgerð, m.a. miðlun ljósmynda eða upplýsinga til klíníkinnar eftir óskum viðskiptavinar.
Úrvinnsla, greining og leiðbeiningar vegna myndgagna eru hins vegar alfarið í höndum viðkomandi læknis eða klíník.ATHUGA
Gefur útlit er ekki ábyrgðaraðili vegna:
- rangra túlkana eða niðurstaðna þriðja aðila
- seinkun á svörum frá klíník
- rangrar meðferðar í kjölfar leiðbeininga læknis erlendis.
8. Fjártjón og takmörkun ábyrgðar
Ábyrgð Gefur útlits er ávallt takmörkuð við það sem íslensk lög heimila og nær ekki til óbeins tjóns, afleidds tjóns eða fjárhagstjóns af hvaða tagi sem er.
Þar með talið, en ekki einskorðað við:
- tapaðar tekjur
- kostnað vegna enduraðgerða erlendis eða á Íslandi
- ferðakostnað, lækniskostnað eða tryggingafélagakröfur
- ófyrirséðan bata- eða meðferðarferil.
9. Sjúkratryggingar og greiðsluþátttaka
Viðskiptavinur ber alfarið ábyrgð á að kanna réttindi sín gagnvart tryggingum, sjúkratryggingum eða endurgreiðslum.
Gefur útlit veitir engin loforð um greiðsluþátttöku né ábyrgist niðurstöðu samskipta við tryggingaraðila.
10. Lög og varnarþing
Þessir skilmálar lúta íslenskum lögum.
Mál sem rísa kunna út frá skilmálum þessum skulu sæta úrlausn hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.