Gefur - Gefandi Ráðgjöf merki Gefur - Gefandi Ráðgjöf merki

Hárígræðsla hentar bæði körlum og konum sem glíma við hárlos

Við miðlum af okkar eigin reynslu og hjálpum þér að finna þá meðferð sem hæfir þér. Eftir frábæran árangur og mjög góða reynslu öllu ferlinu út í Tyrklandi hjá EsteFirst klíníkinni, þá viljum við hjálpa öðrum sem eru í sömu aðstöðu og við vorum í, – að fá sitt besta hár!

Af hverju við ákváðum að stíga þetta skref

Eftir að hafa gengið sjálfir í gegnum hárígræðsluferðina til Istanbúl vorum við sammála um eitt: þetta var mun stærra og vandaðra ferli en við höfðum gert okkur grein fyrir í upphafi. Ekki bara aðgerðin sjálf, heldur allt í kringum hana – undirbúningurinn, fagmennskan, umönnunin og eftirfylgnin.

Okkur leið ekki eins og verið væri að „smala okkur í gegn“, heldur var farið einstaklingsbundið í hlutina.

Okkur leið bókstaflega eins og við værum handgerð vara – þar sem hvert smáatriði skipti máli. Það skapaði traust, ró og öryggi.

Við höfum fylgst með þróun mála í mörg ár

Baldur hafði í áratugi fylgst mjög náið með þróun hárígræðsluaðgerða víða um heim, bæði út frá faglegum áhuga og persónulegri forvitni. Hann hafði kynnt sér ótal klíník­ur, aðferðir og árangur – og var því afar gagnrýninn á valið. Erste First-klíníkin í Istanbúl varð fyrir valinu vegna þess að hún bauð upp á allt sem Baldur taldi skipta máli: fagmennsku, nútímalegar aðferðir, skýrt og heiðarlegt ferli, og ekki síst sanngjarnt verð miðað við gæði – sanngjarnara en víða annars staðar.

EsteFirst klíníkin er fyrsta flokks og býður upp á hárígræðslu með mismunandi aðferðum og tækni ásamt skegg ígræðingu

Hárígræðsla

Nýjasta DHU tækni

Skegg ígræðing

Við hjálpum þér að velja rétta aðferð miðað við þínar aðstæður

Í framhaldi af þessari reynslu ákváðum við, í sameiningu við tyrknesk-íslenska vin okkar Husamettin Kaymaz, að bjóða upp á ráðgjöf og aðstoð fyrir þá sem eru að velta hárígræðslu fyrir sér. Ekki af því að allir eigi að fara í slíka aðgerð – heldur af því að þeir sem gera það eigi að hafa aðgang að heiðarlegum upplýsingum, raunverulegri reynslu og öruggu ferli.

Við fundum frábæra klíník

Við erum í samstarfi við ErsteFirst í Istanbúl, sömu klíník og við fórum sjálfir á. Ástæðan er einföld: við treystum henni. Þar sáum við fagfólk vinna af alúð, með þekkingu og virðingu fyrir hverjum einstaklingi.

Markmiðið okkar er ekki að selja drauma, heldur að vera til staðar – svara spurningum, deila okkar reynslu og hjálpa fólki að taka upplýsta ákvörðun. Hvort sem niðurstaðan er að fara í hárígræðslu eða ekki.

Ef okkar ferðalag og reynsla getur hjálpað öðrum að finna öryggi og vellíðan í þessu ferli, þá erum við glaðir. 

Einar & Baldur

  • Deildu þessu: