Gefur - Gefandi Ráðgjöf merki Gefur - Gefandi Ráðgjöf merki

Við leiðum þig í gegnum ferlið þitt og veitum stuðning alla leið

Ef þú ert að hugsa um hárígræðslu, þá skiptir máli hverjum þú treystir og hvernig ferlið er byggt upp. Með Gefur Útlit færðu persónulega ráðgjöf hér heima og aðgang að alþjóðlegri sérþekkingu í samstarfi við EsteFirst í Istanbúl – klíníku sem hefur sérhæft sig í hárígræðslum síðan 2008.

Frá A-Ö – Allt sem þú þarft að vita

1. Fyrsta skrefið

Byrjaðu á að hafa samband við okkur í gegnum vefpóst (takki neðst á síðunni). Við byrjum með ráðgjöf í gegnum spjall. Við ræðum markmið, heilsu og væntingar. Þú sendir myndir af hárinu og færð fyrstu ráðleggingar.

Við spjöllum um:

  • Hentar hárígræðsla þér?
  • Almennt ástand heilsu þinnar
  • Væntingar og hvaða möguleikar eru í boði sem henta þér
  • Fyrirkomulag aðgerðar, ferðarinnar og hvaða pakkar eru í boði

2. Skipulagning og ferðin til Istanbul

Þegar við höfum farið í gegnum kynningarferli og mat og þú ákveður að fara í hárígræðslu, þá skipuleggjum við með þér ferðina þína og sjáum um að bóka aðgerð, gistingu og akstur á milli flugvallar og klínikarinnar.

  • Við förum yfir það sem við má búast í ferðinni
  • Við skipuleggjum ferðina, bókum þig í aðgerð, hótel og akstur, það er inni í heildarpakkanum
  • Þú bókar flugið þitt (utan pakkans)
Gefur kynningarmynd

3. Aðgerð bókuð

Eftir að hafa gengið sjálfir í gegnum hárígræðsluferðina til Istanbúl vorum við sammála um eitt: þetta var mun stærra og vandaðra ferli en við höfðum gert okkur grein fyrir í upphafi. Ekki bara aðgerðin sjálf, heldur allt í kringum hana – undirbúningurinn, fagmennskan, umönnunin og eftirfylgnin.

  • Eftir að forspjalli og skipulagningu er lokið er komið að því að bóka
  • Við bókum aðgerðina fyrir þína hönd í gegnum EsteFirst
  • Veitum þér svo ráð fyrir undirbúning og bataferli

4. Dagur aðgerðar og dvölin úti

Aðgerðin er yfirleitt annan dag ferðarinnar. Þá eru framkvæmdar læknaskoðun og blóðprufur. Reynsla okkar sýnir að það er of snemmt að fljúga heim dag 3–4 og óþægilegt á meðan bólga minnkar. Flestir eru 5 nætur.

  • Skoðun hjá lækni daginn eftir aðgerð og eftirfylgni daginn þareftir
  • Hádegismatur innifalin á degi aðgerðar
  • VIP keyrsla til og frá flugvelli og til klíníkarinnar
  • Aðgerðinni fylgir lyf og eftirmeðferð og bataráð fyri næstu vikur
  • Pakkanum fylgir 5 stjörnu hótel í Istanbul
Gefur - EsteFirst ráðgjöf. Baldur Rafn ræðir við Dr. Veli.

5. Heimkoma og eftirfylgni

Fyrstu 7–10 dagarnir skipta mestu máli. Þú færð ítarlegar leiðbeiningar frá okkur og við leiðbeinum þér frá degi til dags, en eftirfarandi er dæmigert:

  • Sofa á bakinu fyrstu 2–4 dagana
  • Ekki snerta ígrædda svæðið
  • Ekki fara í líkamsrækt í 10–14 daga
  • Fyrsti þvottur eftir leiðbeiningum
  • Sviti, sól og þrýstingur takmarkað

Við erum í samskiptum í gegnum fjarfundi. Þú sendir myndir og stöðuuppfærslur á meðan þú jafnar þig og við gefum álit og veitum ráðgjöf.

Ert þú að spá í hárígræðslu?

Gefur veitir ráðgjöf byggða á persónulegri reynslu eftir að hafa farið í hárígræðslu sjálfir hjá EsteFirst. Við höfum nú hjálpað tugi manns í sömu aðstöðu og þú og hefur árangurinn ekki látið standa á sér.

Hárígræðsla hentar bæði körlum og konum sem glíma við hárlos, sérstaklega svokallað androgenetic alopecia. Hún hentar einnig fólki með ör eða staðbundið hárlos af öðrum orsökum. Fyrirfram mat fer alltaf fram til að tryggja að aðgerðin henti viðkomandi. Við svörum mörgum spurningum á FAQ síðunni okkar

EsteFirst leggur ríka áherslu á heildstæða þjónustu, þar sem sjúklingum er veitt fagleg ráðgjöf og eftirfylgd fyrir, á meðan og eftir hárígræðsluferlið. Markmiðið er að tryggja öryggi, þægindi og jákvæða upplifun á öllum stigum meðferðarinnar.

Byrjaðu ferlið þitt og hafðu samband núna, við hjálpum þér að finna meðferð sem hentar þér og komast á leiðina að betra hári í dag!

  • Deildu þessu: