Á seinasta deginum hjá Agli Ploder þá fóru sérfræðingarnir á EsteFirst yfir hvernig hann skuli haga framhaldinu og hvað þurfi að passa upp á og gera til þess að ná bestum árangri út úr hárígræðslunni. Lokaskoðun var framkvæmd og fékk Egill sérstakan hárþvott eða höfuðþvott í hans tilviki og að lokum fengu þau honum í té væna tösku yfirfulla af sérstökum sápum og snyrtivörum sem eru þess til lagnar að stuðla að góðum bata og að hársekkirnir grói vel og séu ekki pirraðir. Góðar snyrtivörur með gæða innihaldsefnum skipta máli hér, Baldur Rafn og bpro sérfræðingarnir eru með hágæða vörur sem henta þessu ferli afar vel, kíktu á úrvalið hjá þeim.

Egill fær spes hárþvott seinasta daginn hjá EsteFirst

Væn gjöf að lokum frá EsteFirst klíníkinni